Þar sem sárast svíður
Einkasonurinn hringdi áðan einhverra erinda.
-Er ég að trufla? byrjaði hann á að spyrja.
-Neinei, svaraði móðirin. - Ég var bara að lesa frétt um það að Gordon Ramsay kveikti í pungnum á sér.
Smáþögn.
-Þetta skaltu aldrei nokkurn tíma segja við karlmann.
Svo bar hann upp erindið, sem ég gat aldrei þessu vant ekki leyst úr.
-Þú ert þriðja flokks móðir, sagði sonurinn.
-Viltu að ég lesi alla fréttina um Gordon Ramsay fyrir þig?
-Ég tek þetta aftur, flýtti drengurinn sér að segja. -Þú ert góð móðir.