Bronsdrottningin
Ja hérna - Merlene Ottey er enn að keppa á heimsmeistaramótinu. Orðin 47 ára og keppir í 100 metra hlaupi. Það hlaupa tvær stelpur í sama riðli og hún í nótt sem eru 28 árum yngri.
Líklega bætir hún reyndar ekki neinu við heimsmeistaramótsverðlaunapeningana sína 14 í þetta skipti. En bara það að keppa er glæsilegur árangur.