Vanafasta konan
Strætó var rétt ókominn á Grensás áðan þegar ég mundi skyndilega að ég hafði eiginlega ekki ætlað að fara í vinnuna í dag.
Þetta hefur svosem komið fyrir áður, ég er frekar vanaföst og oft ekki alveg í sambandi á morgnana, er á sjálfstýringu meira og minna. Nokkru eftir að Fróði flutti skyndilega upp á Höfða rölti ég af stað vestur í bæ einn morguninn og var komin á Vesturgötuna þegar ég áttaði mig. Svo flutti Iðunn á sínum tíma öðru hverju af Bræðraborgarstígnum á Seljaveginn og aftur til baka svo að ég var alltaf að ruglast. En það var svosem ekki langt þar á milli.
Stoppa líklega ekki lengi hér í Síðumúlanum - þarf víst að fara heim og undirbúa myndatökur dagsins. Samt er eitt og annað sem ég þarf að sinna fyrst ég er komin hingað á annað borð.
Til dæmis fá mér kaffi.