Síðasti séns fyrir kjötætur
Þetta er bara ekki veður til að sitja inni og elda fyrir matreiðslubók. Nema kannski grillbók. Og jú, það verða vissulega einhverjir grillréttir í bókinni sem ég er að gera þannig að þetta var allt í lagi. Þannig séð. Nema núverandi svalir bjóða ekki upp á að eldhúsið sé fært þangað út í góðu veðri.
Allavega er farið að síga á seinni hlutann í myndatökunum. Fólk ætti að hafa í huga að hér á bæ eru til töluverðar birgðir af (elduðu) gæðakjöti sem húsmóðirin kemur ekki einsömul í lóg. Jafnvel ekki með aðstoð einkasonarins þótt hann sé drjúgur þegar kjöt er annars vegar.
Síðasti séns, það er bara eftir að mynda grænmetisréttina ...