Grill og gúmmulaði
Dagskráin í dag hljóðar upp á grillsteikur og sætmeti. Það viðrar líka til þess ...
Aftur á móti sýnist mér veðurspáin fyrir helgina á Akureyri ekki sérlega góð. Ojæja, ég er hvort eð er ekki að fara norður til að liggja í sólbaði.
Myndin er aftur á móti af stoltu liði Sauðargærunnar, sem var að keppa á fótboltamóti í fyrsta sinn og gekk bara nokkuð vel. (Hann er sá krullhærði með gleraugun.)