Gamla fólkið
Dóttursonurinn kom hér áðan og rakst á auglýsingapésa um Sumarleik Byrs og fjölskyldunnar - Shrek 3.
Sauðargæran (mjög undrandi): -Fékkst þú þetta, amma?
Amman: -Ha - já.
Sauðargæran: -Ég vissi ekki að svona gamalt fólk fékk þetta.
Ég gat allavega fullvissað hann um að ég ætlaði ekki að teikna mynd af Shrek og senda inn. Þannig að hann sleppur við þá samkeppnina.