(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

5.2.07

Kerlingarraus

Þetta er óréttlátt.

Fokking óréttlátt.

Ég er að drepast í hnénu. Slitgigt eða einhver annar ellihrörleiki.

Og ég er að drepast úr túrverkjum.

Ókei, ég er miðaldra og hef ekkert farið allt of vel með skrokkinn á mér. Og ég er kona og því fylgir ákveðin bölvun. Þannig að hvorttveggja er þetta vísast fullkomlega eðlilegt.

Það sem mér finnst ekki eðlilegt - og alls ekki réttlátt, eins og ég er þegar búin að segja - er að þetta skuli hrjá mig samtímis.

Það á bara ekki að vera þannig.

Ókei, vissulega hef ég aldrei orðið almennilega fullorðin. Og það er ekki eitt grátt hár á hausnum á mér ennþá. Þannig að líklega er einhver partur af mér enn að berjast gegn því að verða miðaldra. En fjandakornið, eldra barnið mitt er komið á fertugsaldur. Ég á þrettán ára barnabarn.

Og á morgun eru einmitt slétt tuttugu og sex ár síðan legið í mér var síðast í notkun. Skilaði sínu hlutverki með sóma. Maður skyldi nú ætla að líkaminn færi að fatta að andlega séð er ég lööööngu komin úr barneign. Alveg tilbúin fyrir blessað breytingaskeiðið. Búin að vera það í mörg ár.

En nei. Skrokkurinn lætur sér ekki segjast. Heldur áfram að gera ráð fyrir áframhaldandi barneignum en slengir bara miðaldrakvillunum ofan á. Slitgigt, háþrýstingi og öllu saman.

Og það er verulega andskoti óréttlátt.

Kerlingarraus dagsins var í boði Nönnu. Nú líður mér betur.

|