Megrunaraðferðir
Ég notaði tækifærið þegar við komum við hjá pabba og mömmu á Króknum í gær og steig á vigtina á baðinu. Ég á nefnilega ekki vigt (eða jú, ég á hana en hún er týnd) og hef ekki vigtað mig síðan snemma í haust.
Ég reyndist tíu kílóum léttari en síðast. Það er vissulega af nógu að taka - en samt ...
Það virkar semsagt næstum eins vel fyrir mig að hætta að vinna hjá Birtíngi eins og hjá Eyþóri Arnalds að hætta að keyra bíl.