Verðlaunaskegg
Já, og svo ætla ég að láta þess getið að elskulegur einkasonur minn vann mústas-keppni Októberfestar (segir maður það?) HÍ með glæsibrag (enda skartaði hann einkar flottu skeggi) og fékk í verðlaun klippingu og brúnkumeðferð.
Því miður eru þeir sem misstu af að sjá verðlaunamústasið of seinir til að sjá það í eigin persónu; drengurinn er búinn að raka sig. En nú er spurning hvort hann fer í brúnkumeðferðina. Hér má allavega sjá hann með mústasið og dálítið brúnan.