Bókaskrif
Það hringdi í mig maður í morgun og spurði hvort ég væri ekki til í að skrifa bók.
-Ekkert mál, sagði ég. -Þarf það að vera fyrir helgi?
En það kom upp úr dúrnum að bókin þarf bara að vera komin í próförk fyrir mánaðamót.
Ég er einmitt í sumarfríi fram að mánaðarmótum svo að ég hélt það nú.
Sjáum til hvað laugardagurinn dugir í bókaskrifin. Og fyrri hluti sunnudags, ég fæ íbúðina varla afhenta fyrr en seinnipartinn.
Verst með tölvuleysið reyndar. Gæti tafið aðeins fyrir mér.