Stóra ísskápsmálið
Stóra ísskápsmálið er leyst. Þ.e. ísskápur Bistrós er kominn úr forstofunni og upp á ritstjórn svo að ég þarf ekki lengur að gera mig granna og beita alkunnri kroppafimi minni þegar ég kem í heimsókn.
Sjálf þarf ég að koma einum eða tveimur hlutum út af Kárastígnum sem komast ekki niður stigann - eða þeir komust allavega ekki upp hann á sínum tíma - en það er minna mál því að það er hægt að taka þetta af svölunum og nota kaðla.
Hinn möguleikinn er að hella bjór í einkasoninn. Hann hefur komið ótrúlegustu hlutum upp stigann þegar hann hefur fengið sér í tána.