Karlmannslaust í Himnaríki
Ég leit inn á skrifstofuna hjá Vikunni áðan. Staldraði við hjá Gurrí og kom auga á hvaða bækur hún er með við hliðina á sér. Íslenskir milljarðamæringar, einhver stjörnumerkjabók, The Little Book of Hollywood Cliches.
Hún er greinilega í eiginmannsleit.
Kannski líka þess vegna sem hún var svona fús til að lána mér Chippendales-matreiðslubókina sína. Vill ekki hafa hana á glámbekk þegar henni tekst að klófesta einhverja blásaklausa Skagamenn og sjanghæa þeim inn í Himnaríki.