Sumarfrí
Mér leiðist í sumarfríinu. Ekkert að gera og skemmtilega verkefnið sem ég ætlaði eiginlega að vinna að er komið í biðstöðu.
Ég gæti í staðinn alveg notað tímann til að henda öllu út úr búrinu eða skúrnum en er ekki alveg í skapi fyrir það heldur. Læt það líklega bíða þar til ég tek afganginn af fríinu seinna í sumar.
Eða lengur.
Annars verð ég að draga til baka það sem ég sagði í gær um að enginn hringdi í mig. Ég er búin að fá tvö áhugaverð símtöl í morgun og klukkan rétt orðin tíu.