Séð og heyrt ...
Aftur á móti kom nákvæmlega ekkert á óvart að það sem hér var fullyrt við okkur reyndist ekki alveg rétt.
Ég er að fara í sumarfrí. Eða ég er eiginlega komin í sumarfrí en er samt í vinnunni. Það er ekki nýmæli.
Þegar ég var hjá Iðunni sagði einn vinnufélagi minn jafnan þegar hann kom úr sumarfríi: -Ég vil fá rapport yfir ráðna og rekna á meðan ég var í fríinu.
Ætli ég þurfi ekki að biðja um eitthvað svipað þegar ég kem aftur um miðjan mánuðinn?