Það munaði litlu að ég væri lamin í hausinn með frosinni nýsjálenskri nautalund á miðjum Frakkastígnum áðan.
-Það væri nú frétt, sagði efnafræðistúdentinn. -Tuttugu og fjögurra ára Reykvíkingur myrðir móður sína með nautalund. En er sleppt vegna skorts á sönnunargögnum af því að hann lætur lögguna éta morðvopnið.
En hann verður bara að sætta sig við að ég er í nöldurskapi þessa dagana. Til hvers á maður syni ef ekki til að nöldra í þeim?