Nýtt líf útnefnir Konu ársins á eftir og eins og venjulega sást þeim algjörlega yfir mig. Ég skil ekkert í þessu ... Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að ég verði ekki yfir mig hrifin af valinu. En kannski hef ég rangt fyrir mér.
Ég mæti nú samt. Alltaf til í frítt bús og svoleiðis. Þarf líka að bæta mér upp að ég missti af Eddupartíinu - ég var búin að vera grútfúl yfir að fá ekki boðskort og svo kom upp úr dúrnum að það hafði verið sent í vinnuna og lá í Gestgjafapósthólfinu, sem ekki hafði verið tæmt í viku af því að ritstjórinn er í veikindafríi. Svo að ég er steinhætt að vera fúl út í Eddu. Nógir eru nú samt.