Sauðargæran var í heimsókn áðan og var að hjálpa mér að elda kvöldmatinn. Við vorum að ofnsteikja folaldafillet (mjög gott) og ég var með kjöthitamæli í því til að fylgjast með hvenær það væri steikt. Ég tók það svo út og setti á eldhúsbekkinn.
Sauðargæran (bendir á hitamælinn sem stendur út úr kjötinu): -Er þetta heitt?
Amman: -Já, þetta er heitt.
Sauðargæran ákveður að trúa ekki ömmu sinni og grípur um mælinn. Rekur upp skræk og þarf að hafa hægri hendina í blautum þvottapoka alla máltíðina.´
Típískur karlmaður.