Ég ætla semsagt að bregða mér til Frakklands um helgina, það er að segja ef ég finn fjandans vegabréfið. Búin að finna blaðamannapassann en hann dugir líklega ekki. Nema hvað myndin í honum líkist mér en það verður ekki sagt um myndina í vegabréfinu.
Einhver mundi nú segja að þetta væri ekki rétti tíminn til að fara á þær slóðir en ég efast um að það sé mikið um óeirðir á vínekrunum í Búrgund. Geri allavega ráð fyrir að komast á áfangastað, svo verður bara að ráðast hvort ég kemst heim aftur. Ég á jú eftir þrjár vikur af sumarfríinu ...