Ég hringdi í efnafræðistúdentinn áðan til að láta hann vita að ritstjóri Gestgjafans mundi koma við og ná í hann. Allt í lagi með það. En svo áttaði ég mig á að ég mundi ekki ákveðið grundvallaratriði ...
Móðirin: -Sko ... hvar áttu aftur heima, Hjalti minn?
Löng þögn.
Efnafræðistúdentinn: -Þú ert nú alveg ótrúleg.
Móðirin: -Já, ég veit ...
Efnafræðistúdentinn: -Og svo er ég heima hjá þér. Ég var búinn að segja þér það. Oft.