Straujunarnámskeið fyrir karlmenn? Sko, ég veit það ekki. Á mínu heimili er það ég sem er vonlaus í að strauja ... æi, já, á mínu heimili er víst engum til að dreifa nema mér nú orðið. Og ég er vonlaus í að strauja. Eða aðallega, ég nenni því svo illa. Efnafræðistúdentinn er aftur á móti röskur straujari þegar hann tekur sig til.
Því miður er ég alltaf að eignast fleiri og fleiri flíkur sem þarf að strauja. Veit ekki alveg hvernig á því stendur því að mér þykja fá heimilsstörf leiðinlegri.