Ég fór að fletta nýútkomnu Séðu og heyrðu til að athuga hvað félagar okkar segðu um opnunarteiti Gestgjafavefsins. Fletti langt aftur í blaðið og sá ekkert. Svo rak ég augun í fyrirsögnina Sætar og sexí! Aha, það erum við Solla ritstjóri, hugsaði ég. En nei, þetta voru þátttakendur í keppninni Sumarstúlka Séð og Heyrt. (Er sumarið ekki annars búið???) Og ekkert um okkur Sollu.
Ég er sármóðguð.