Pósturinn kom áðan með bók sem mér líst nokkuð vel á en hef því miður engan tíma til að glugga í allra næstu daga: Being Dead is No Excuse: The Official Southern Ladies Guide to Hosting the Perfect Funeral. Nema ég opnaði bókina af handahófi og fyrsta uppskriftin sem ég sé (auðvitað er þetta matreiðslubók) er Vodka Cake.