Núna man ég allt í einu af hverju ég eldaði mér ekki kvöldmat í gær.
En það mundi ég ekki fyrr en ég ætlaði að fara að elda kvöldmatinn núna. Þá komst ég að því öðru sinni að gasið er búið.
Það er allt í lagi, ég elda bara eitthvað í ofninum. Þarf svo að reyna að muna að fá einhvern til að skutlast eftir áfyllingu á kútinn fyrir mig ...
Hugsanlega á varakútinn líka. Það væri nú gáfulegt.