Efnafræðistúdentinn kom í heimsókn áðan, vildi samt ekki vera í kvöldmat. Ég spurði hann hvort ég ætti ekki að hætta að tala um hann sem efnafræðistúdentinn og kalla hann Glataða soninn.
-Endilega, sagði hann bitur. -Systir mín er gagnlega barnið og ég er glataði sonurinn.
Hann verður bara efnafræðistúdentinn áfram.