Ég fæ víst ekkert vínberjabrauð í kvöld, það fengust ekki vínber í Krambúðinni og ég nennti ekki að leita að þeim annars staðar. Verð að láta mér nægja það sem ég ætla að baka á morgun.
Þannig að í staðinn fyrir að vera í eldhúsinu að baka sit ég hér og hlusta á einræður efnafræðistúdentsins.
Efnafræðistúdentinn: -Ég veit hvað rostungur er á japönsku. Það er svo gagnslaus vitneskja að það hlýtur að vera hægt að hafa eitthvert gagn af henni.
Sem minnir mig á að ég ætlaði að hitta mann að máli í dag en hann reyndist þá vera einhvers staðar úti á sjó að skjóta blöðrusel.
Efnafræðistúdentinn veit ekki hvað blöðruselur er á japönsku.