Búin að fá vínberjabrauðið mitt. Namminamminamm.
Líka búin að baka einfaldasta hveitibrauð í heimi (meira namm), rósmarín- og laukbrauð með cheddar (enn meira namm), karabískt roti og þýskt rúgbrauð. Namm.
Það eru sennilega allir búnir að átta sig á því að ég er dálítið hrifin af nýbökuðu brauði.