Ég hefði eins getað verið á útihátíð í nótt miðað við að lengi nætur var heljarinnar partí í bíl sem lagt var á Kárastígnum beint fyrir neðan svefnherbergisgluggann minn.
Mér finnst að þegar fólk þarf endilega að skrúfa græjurnar sínar í botn um miðja nótt og hafa alla glugga opna geti það allavega spilað almennilega músík.