Það eru flestir eitthvað svo sumarlegir í dag. Greinilegt að margir hafa beðið lengi eftir því að geta klæðst í sumarlegu fötin sín og eru aldeilis að nýta færið í dag. Ég líka. Samt fór ég ekki í pilsið sem ég keypti mér á útsölu um daginn og er alveg gífurlega sumarlegt; vonandi stendur sumarið í nokkra daga í viðbót svo að ég geti notað það að minnsta kosti einu sinni á meðan það er enn í tísku.
Ég er samt í límónugrænum ermalausum bol sem er fleginn langleiðina niður á nafla. Ég var beðin um það fyrir upptöku sem ég var í að vera ekki í fleginni flík að ofan því að þá þarf að meika alla bringuna (helvítis vesen alltaf þetta meik eins og ég þusaði um í gær). Ég kíkti í fataskápinn og komst að því að ég á eiginlega engar flíkur sem ekki eru töluvert flegnar. Einhver óútskýrð sýniþörf líklega.