Annars er ég ekkert ein um það í fjölskyldunni að hafa eitthvað sést í fjölmiðlum þessa dagana, mér skilst að í Mogganum í gær (hef enn ekki séð blaðið) hafi verið stór mynd af Boltastelpunni dótturdóttur minni í aksjón og textinn sem fylgdi: KR-ingurinn kann að fara með boltann (eða eitthvað í þá veru).
Örskömmu eftir að myndin var tekin fékk téður KR-ingur hinsvegar öflugt spark í hökuna og gat því ekki lokið leiknum. Stórhættuleg ofbeldisíþrótt, þessi fótbolti.