Jæja, þá er komið að Ítalíureisunni.
Ég fer reyndar ekki fyrr en seinnipartinn í dag svo að það getur vel verið að ég skrifi eitthvað meira áður en ég fer en svo veit ég ekkert hvort ég verð í einhverju netsambandi næstu 11 dagana. Kemur í ljós.
Það er spáð 25 stiga hita og sólskini í Piemonte næstu dagana. En ég verð reyndar í London í nótt og á morgun; þar sýnist mér að sé fínasta veður líka.
Arrivederci.