Ég kom inn í Te og kaffi á Laugaveginum áðan. Þar stóð bráðhuggulegur ungur gengilbeinn við afgreiðsluborðið og beið eftir pöntun. Ég stóðst ekki freistinguna, heldur laumaðist aftan að honum og kleip hann í síðuna.
Hann leit á mig og sagði: -Maður gæti haldið að þú værir mamma mín - æi, já, þú ert það víst.
Efnafræðistúdentinn er kominn í kaffibransann eins og uppáhaldstengdasonurinn.