Þessir síðustu dagar hafa verið dálítið annasamir en nú er það búið og ég sé fram á tiltöluleg rólegheit þar til ég fer til Ítalíu á mánudaginn. Þetta gekk allt ágætlega, bæði myndatökur og afmælisveisla.
Ég fór í morgun og sótti bókasendingu á pósthúsið. Þar á meðal var matreiðslubók frá Seychelleseyjum sem ég var búin að hlakka til að fá og virðist heldur ekki ætla að valda vonbrigðum - þegar ég opnaði bókina var fyrsta uppskriftin sem ég sá ,,Shark chutney" og hún byrjar svona ,,1 shark (medium size)". Og svo er hér leðurblökukarrí með kreólahrísgrjónum.
Mér líst vel á þessa bók.