Efnafræðistúdentinn ákvað að leggja sig áðan eftir að hafa vakað hálfa nóttina við próflestur.
Móðirin: -Hvenær á ég að ýta við þér ef þú verður ekki vaknaður?
Efnafræðistúdentinn: -Æi, svona klukkan tólf. (Fer inn til sín og lokar. Opnar dyrnar strax aftur): -Þegar ég segi tólf meina ég hálf eitt. (Lokar aftur og opnar um hæl): -Give or take. (Hugsar sig um): -Aðallega take.