Myndatökur fyrir grillblaðið byrjuðu í dag. Aldrei þessu vant snjóaði ekki.
Nei, þetta eru reyndar ýkjur en ég man að þegar við byrjuðum að mynda fyrir grillblaðið í fyrra kom él á mig þegar ég var á leiðinni heim úr búðinni með hráefnið og gott ef ekki gerðist eitthvað svipað í hitteðfyrra.
Ég var reyndar ekki að grilla steikur eða neitt slíkt núna, heldur að baka brauð og kökur á grillinu. Það er ekkert mál (meira að segja hægt að baka Betty á grillinu) en ég gekk samt ekki svo langt að baka kransaköku á grillinu eins og sýnt er í bók sem ég á.
- Á meðan ég man, hvað finnst ykkur um nýjasta Gestgjafann, þið sem hafið séð blaðið? Gagnrýni er alltaf vel þegin eins og þið vitið.