Ég var eitthvað að vorkenna sjálfri mér í dag að þurfa vestast á Vesturgötuna ef ég á erindi í bankaútibúið mitt (sem ég á reyndar næstum aldrei). En svo var ég að horfa á Mastermind á BBC áðan og þar barst í tal við einn keppandann, sem vinnur hjá breskum banka sem heitir Local-eitthvað Bank, að þegar maður hringir í bankann sinn þar er eins víst að sá sem svarar í símann sitji í einhverju símaveri á Indlandi; það er ekki lengur hægt að hringja í útibúið sitt.
-Not very local, is it? sagði spyrillinn.
-It is if you are in India, sagði bankastarfsmaðurinn vandræðalegur.
Jamm. Ókei, ég kvarta ekkert. Ef ég skyldi þurfa að tala við bankann í síma er hugsanlega enn svarað í útibúinu á Vesturgötunni. Allavega örugglega ekki á Indlandi.