Ég er að fara á Vox í kvöld. Reyndar ekki fyrr en frekar seint. Kosturinn við Vox fram yfir hin Food & Fun-veitingahúsin er að kokkurinn sem þar er þekkir ýmis íslensk hráefni vel, er vanur að vinna með þau, notar þau á sínu eigin veitingahúsi og er auk þess mjög spennandi kokkur með reynslu frá El Bulli, French Laundry og fleiri toppveitingahúsum.
Svo langar mig reyndar líka til Gissurar á Tveimur fiskum. Hann er með skemmtilegt mótvægi við útlendu gestakokkana.