Ég fékk nýja vinnutölvu í morgun.
Hún bilaði um leið og kveikt var á henni.
Ég tók niður jólaseríuna sem skreytti skrifstofuna mína áðan og fékk rafstuð.
Síminn hringdi og það var enginn á línunni.
Þegar ég fór í mat í hádeginu og ýtti á lyftuhnappinn kom ljósblossi.
Mér líst ekki á þetta.