Búin að elda íslenskan, enskan, indverskan og malasískan karrírétt og á eftir að gera einn karabískan, það er að segja ef fulltrúi minn sem sendur var inn í Kringlu áðan fær ákveðið hráefni sem mig vantar í hann. Ef ekki verð ég að impróvisera aðeins.
Fjórða hæðin angar næstum eins og indverskt veitingahús. Ætli ég neyðist svo ekki til að elda eitthvað karríkennt handa efnafræðistúdentinum í kvöld?