Fékk tölvupóst áðan frá einhverjum Thaddeus Pike. Það hljómar eins og beint útúr Dickens. En nei, þá var gaurinn bara að bjóða mér einhver kostaboð á hugbúnaði. Nema það hafi verið geðlyf eða tippalengingar.
Reyndar er eins víst að Thaddeus Pike í Dickens hefði verið með einhver svipuð kostaboð í gangi, bara að þeirra tíma hætti. Kínalífselexír eða eitthvað. Mannskepnan breytist ekkert.