Það er ýmislegt leyft nú til dags sem ekki mátti í mínu ungdæmi. Gagnlega barnið hefði kannski átt að láta reyna á það hvort henni hefði verið leyft að láta Sauðargæruna heita Ofn.
Boltastelpan ætlar ekki að eignast börn en hún var samt búin að ákveða í sumar að ef hún eignaðist strák ætti hann að heita Fatúel eftir langalangafa hennar, Skotanum Phatuel McKenzie. Ég held samt að hún sé komin á það núna að nota nafnið frekar á hund eða kött svo að það kemur varla til kasta mannanafnanefndar.