Efnafræðistúdentinn var búinn að segja mér að hann kæmi frekar seint heim í dag. Ég kom heim klukkan hálfsex, settist upp í sófa og fór að horfa á David Letterman í norska sjónvarpinu eða eitthvað.
Klukkan sjö var mig farið að lengja eftir drengnum svo að ég hringdi í gemsann hans. Hann svaraði strax.
Móðirin: -Ertu ekki að fara að koma heim bráðum, góði?
Efnafræðistúdentinn (eftir smáþögn): -Mamma. Ég er inni í herberginu mínu.
Ó.