Ég er ekki í lagi.
Ég sé sjónvarpsfrétt um hamfarir og hörmungar á Maldíveyjum og það fyrsta sem mér dettur í hug er ,,æi, ég gleymdi alltaf að panta maldívsku matreiðslubókina sem mig langaði í".
Merkilegt annars að nokkur skuli vera lifandi þarna. Flóðbylgjan var tveggja metra há og hæsti blettur á eyjunum er 2,4 m yfir sjávarmáli.