Vísur fyrir vonda krakka eftir Davíð Þór eru að mér skilst á óskalista hjá báðum barnabörnunum mínum. Það kemur mér ekkert á óvart.
Sauðargæran er annars lasinn heima hjá sér og er búinn að uppgötva að hann langar að fara norður á Sauðárkrók og heimsækja langafa sinn og langömmu og klifra upp í tré. Hann situr heima núna og er að reyna að sannfæra mömmu sína um að það sé ekkert langt á Krókinn. Sem það er náttúrlega ekki en ekki mundi mig langa að sitja í bíl á norðurleið núna í hálkunni; seinasta vetrarferð fór ekki vel. Eða reyndar betur en á horfðist, en samt ...