Sjálflærandi er nú ekki fallegt orð. En kannski er vel viðeigandi að nota það um nýja hátæknihnéð frá Össuri, eins og sá sem var að sýna það gerði í sjónvarpsfréttunum áðan, þar sem mér skildist að aðalfídusinn væri hvað það lagaði sig vel að lærinu og hreyfingum þess.
Hné með gervigreind, það hljómar svolítið ógnvekjandi.