Ég var að fletta í gegnum Bókatíðindin. Er ekkert farin að lesa þau en þetta eru titlarnir sem ég stoppaði við svona í fyrstu umferð.
Lífsins melódí eftir Árna Johnsen - nei, ég held ekki.
Heppin eftir Alice Sebold mundi mig kannski langa í ef ég ætti hana ekki á ensku.
Furðulegt háttalag hunds um nótt mundi mig örugglega langa í ef ég ætti hana ekki á ensku.
Mig langar ekki í neinar bækur um slæma meðferð á kvenfólki í öðrum heimshlutum. Alveg sama hve átakanlegar og grípandi þær eru. Frekar mundi ég vilja lesa Arabíukonurnar hennar Jóhönnu Kristjóns.
Sögu mótorhjólsins á Íslandi - mig langar ekki vitund í bókina en það rifjaðist upp fyrir mér frásögn einnar vinkonu minnar af því þegar fjölskyldan flutti norður á Krók þegar hún var fjögurra ára og hún sat fyrir aftan pabba sinn á mótorhjólinu alla leið. Bundin niður að ég held en auðvitað hjálmlaus.
Uppnefni í Stykkishólmi á árunum 1930-50. Gæti nú verið forvitnileg en ekki langar mig beinlínis í hana.
Súperflört, kennslubók í daðri. Ekki veitti mér nú af en samt ...
Alfræði Baggalúts. Æi, er það ekki einum of?
Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Já, mig langar nú eiginlega í þær.
Efnasamsetning matvæla. Sko, mig vantar þessa bók. En langar ekkert sérstaklega í hana.
Ég þarf eiginlega að lesa Glóið þið gullturnar. Ég las fyrir nokkrum árum handritið sem fyrrihluti sögunnar er byggður á og langar til að sjá hvað Björn Th. hefur gert úr því. ,,Afkomendur hans eru margir og hafa ýmsir þeirra sett mikinn svip á samfélagið á Skagaströnd," stendur í kynningunni. Eru það meðmæli? (tek fram að ég er móðir eins afkomandans).
Mig langar að lesa bókina hennar Gerðar Kristnýjar.
En mig langar ekki einu sinni að opna bókina 100% Nylon, svo að ég geri nú upp á milli tveggja samstarfskvenna minna.
Sem sagt, einu bækurnar þarna sem mig langar virkilega að eignast eru Þjóðsögur Jóns Árnasonar.