Ef einhvern langar að vita hvernig hljóð pirraður elgur gefur frá sér, þá má hlusta á það hér.
Ég hef engan sérstakan áhuga á að kynnast elgum en mig langar að smakka elgsost (sem kostar að ég held 40-50 þúsund krónur kílóið) og það getur verið að mér standi það til boða í næstu viku. Ásamt grænlensku bláklukkusírópi og fleira góðgæti.