Tilviljanir geta verið skrítnar. Ég var búin að nefna áður að nafni hans dóttursonar míns var að byrja á sömu leikskóladeild á dögunum. Samtals eru þeir 50% af Úlfum fæddum árið 2001. Þeir heita báðir aðeins einu nafni sem ekki er stytt. Þeir eru báðir ljóshærðir og krullhærðir. Báðir eiga sagnfræðimenntaðar mæður.
Og báðir eru stundum - af fólki sem veit að undir sakleysislegu yfirborðinu leynist lítill skelmir - nefndir Sauðargæran.