Allt í einu fékk ég hugljómun um kvöldmatinn: Risotto. Þetta er risottolegur dagur. Veit ekki enn hvað ég set í það (mundi kannski setja villisveppi ef ég væri ekki að fara að elda ofan í efnafræðistúdentinn) - kannski bara grænmeti, kannski skinku eða pepperónístubba.
Ég er enn netsambandslaus heima. Þetta fer að verða krítískt. Best að gera eitthvað í málinu fyrst enginn annar ætlar að gera það.