Ég uppgötvaði það ekki fyrr en í gærkvöldi að ég var búin að vera í bolnum öfugum allan daginn. Líka í sjónvarpsviðtalinu um morguninn. Eins gott að hann var ekki úthverfur.
Ég er enn í vinnunni af því að ég er netsambandslaus heima (pirr) og þarf því að klára eitt og annað hér sem ég mundi annars gera úr sófahorninu á nýja fína sófanum mínum (meira pirr). Ef ég fæ ekki tenginguna í lag fyrir helgi verð ég örugglega verulega pirruð og eins gott fyrir efnafræðistúdentinn að það eru ekki til neinar makkarónur heima núna.
Ég er ekki í stuði til að elda (sem gerist stundum þegar ég þarf mikið að elda í vinnunni) en er banhungruð af því að ég er búin að vera að lesa og skrifa uppskriftir í allan dag og er því búin að mæla mér mót við efnafræðistúdentinn niðri í bæ og bjóða honum eitthvað út að borða. Ekki alveg ákveðið hvert.