Kannski best að ég setji krækju hér á risottopistilinn sem ég skrifaði einu sinni af því að ég kann ekki að gera það í kommentunum.
Og já, það er alltaf tími fyrir risotto. Ekki síst þó í svona veðri. The ultimate comfort food, eins og efnafræðistúdentinn segir.
Þetta sem ég eldaði í gær var með svolitlu beikoni og slatta af hráskinku. Og var bara nokkuð gott.